Forpöntun · Sumar 2026

Sóley og Fífa finna dreka

Ný barnabók eftir Þorbjörgu Söndru Bakke — saga um vináttu, hugrekki og hið óvænta.

4.500 kr

Forpantaðu núna ↓
Um bókina

Sóley og Fífa finna dreka

Falleg bók með hugljúfri sögu og handmáluðum myndum Þorbjargar.

Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því alltaf mikil eftirvænting þegar þær hittast.

Sóley og Fífa finna dreka er framhald af fyrstu bókinni um frænkurnar. Í bókinni fáum við að kynnast þeim enn betur, uppgötvum fleiri blóma- og fuglategundir og fylgjumst með frænkunum lenda í spennandi ævintýrum. Þær halda áfram að rækta vináttu sína en í þetta sinn finna þær líka hugrekkið sitt!

Bókin hentar lesendum á öllum aldri, en er sérstaklega ætluð börnum á aldrinum 3–7 ára.

Forpöntun

Forpantaðu bókina

4.500 kr

Fylltu út formið og við sendum þér nánari upplýsingar þegar bókin fer í prentun.

Áhugasamir geta einnig skráð sig á lista fyrir endurútgáfu fyrri bókar, sem verður endurprentuð náist lágmarksfjöldi pantaðra eintaka.

Forpöntun
Þorbjörg Sandra Bakke
Frá höfundi
„Mínar bestu minningar frá barnæsku tengjast lestri“

Það er fátt eins gefandi og að setjast niður með börnum og lesa fyrir þau góða sögu og fá síðan yfir sig spurningaflóðið sem myndast í hugum þeirra. Grípa svo tækifærið og ræða við þau um heima og geima og allt annað sem skiptir máli.

— Þorbjörg Sandra