Sóley og Fífa

Bækurnar

Sögur eftir Þorbjörgu Söndru Bakke.

Bókarkápa: Sóley og Fífa finna dreka
Forpöntun · Væntanleg haustið 2026

Sóley og Fífa finna dreka

Sóley og Fífa finna dreka er framhald af fyrstu bókinni um frænkurnar. Í bókinni fáum við að kynnast þeim enn betur, uppgötvum fleiri blóma- og fuglategundir og fylgjumst með frænkunum lenda í spennandi ævintýrum. Þær halda áfram að rækta vináttu sína en í þetta sinn finna þær líka hugrekkið sitt!

Bókin hentar lesendum á öllum aldri, en er sérstaklega ætluð börnum á aldrinum 3–7 ára.

Forpantaðu núna →
Bókarkápa: Sóley og Fífa fara í berjamó
Útgefin · Kom út í ágúst 2025

Sóley og Fífa fara í berjamó

Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því alltaf mikil eftirvænting þegar þær hittast.

Í bókinni „Sóley og Fífa fara í berjamó“ segir frá vináttu þeirra, fallegum samskiptum, fuglum, blómum, náttúrunni – og auðvitað berjunum!