
Þorbjörg Sandra Bakke
Um höfundinn og tilurð bókanna
Þorbjörg Sandra Bakke hefur starfað í umhverfismálum í nær tvo áratugi en steig sín fyrstu skref sem mynd- og rithöfundur haustið 2025 með útgáfu bókarinnar „Sóley og Fífa fara í berjamó“. Hún er með menntun í stjórnmálafræði, náttúrufræði og siðfræði og leggur áherslu á að tvinna saman jákvæðar hliðar þessara fagsviða í lífi og starfi.
Í bókaflokknum um Sóleyju og Fífu byggir hún á þessum grunni. Hún velur að draga fram falleg mannleg samskipti og umhyggju fyrir náttúru og umhverfi. Sögurnar eru jafnframt byggðar á æskuminningum höfundar frá uppvaxtarárum hennar þegar hún varði sumrum sínum í sveit í Svarfaðardal. Hún nýtir sér minningar af frænkum og vinkonum, ömmum, öfum og öðru uppáhalds samferðafólki til að skapa þessar yndislegu persónur sem sögurnar hverfast um auk þess sem Þorbjörg sækir sér innblástur í starf sitt.
Þorbjörg starfar sem teymisstjóri í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og Orkustofnun. Í starfi sínu vinnur hún að því að vernda umhverfið með því að hvetja samfélagið til að bera virðingu fyrir náttúrunni og nýta betur auðlindir jarðar, draga úr sóun, gera við það sem hægt er og deila eða fá lánað. Þessi sýn endurspeglast í bókunum á hófstilltan hátt, ýmist í myndum eða með léttum áherslum í texta. Fyrst og fremst er þó lögð áhersla á samband stúlknanna og dýrmætar stundir þeirra saman í sveitinni.
Hún nýtur þess að hlusta á sögur, fallega tónlist eða fuglasöng og mála umhverfið sitt í leiðinni.
Þorbjörgu eru samfélagsmálin hugleikin og hún hefur áhuga á því að efla náungakærleik, samvinnu og það sem hún telur að geri samfélög skemmtilegri; fallegri og betri. Hún nýtur þess að hlusta á sögur, fallega tónlist eða fuglasöng og mála umhverfið sitt í leiðinni. Skemmtilegast finnst henni að mála blóm og fugla og hún fær svo sannarlega útrás fyrir það við gerð bókanna, en í bókinni Sóley og Fífa finna dreka reynir á nýja hæfni, enda drekar ekki eitthvað sem náttúrufræðingar rekast á á hverjum degi.

Ertu með spurningar eða hugleiðingar?
Sendu mér skilaboð og ég svara eins fljótt og auðið er.
Hafðu samband