Sóley og Fífa finna dreka
Ný barnabók eftir Þorbjörgu Söndru Bakke — saga um vináttu, hugrekki og hið óvænta.
4.500 kr
Forpantaðu núna ↓
Sóley og Fífa finna dreka
Falleg bók með hugljúfri sögu og handmáluðum myndum Þorbjargar.
Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því alltaf mikil eftirvænting þegar þær hittast.
Sóley og Fífa finna dreka er framhald af fyrstu bókinni um frænkurnar. Í bókinni fáum við að kynnast þeim enn betur, uppgötvum fleiri blóma- og fuglategundir og fylgjumst með frænkunum lenda í spennandi ævintýrum. Þær halda áfram að rækta vináttu sína en í þetta sinn finna þær líka hugrekkið sitt!
Bókin hentar lesendum á öllum aldri, en er sérstaklega ætluð börnum á aldrinum 3–7 ára.

Forpantaðu bókina
4.500 kr
Fylltu út formið og við sendum þér nánari upplýsingar þegar bókin fer í prentun.
Áhugasamir geta einnig skráð sig á lista fyrir endurútgáfu fyrri bókar, sem verður endurprentuð náist lágmarksfjöldi pantaðra eintaka.



